Afrodita -
kr. 4200.-
er verndargyðja ástar,
fegurðar og kynferðislegs
algleymis, þín innri gyðja.
Þó sumir kunni að halda hana
grunnhyggna þá býr hún yfir
meiri dýpt en augað sér.
Og því til viðbótar býr hún yfir
krafti og sjálfstjórn.
Áttkantur 27 cm hár
Ilmur: Kampavín
Artemis
kr. 4200.-
er gyðja óbyggðanna og villtra dýra,
en síðar varð hún einnig gyðja fæðandi
kvenna. Hún var skírlíf og bað ung
föður sinn, guðinn Zeus, að veita sér
eilífan meydóm. Hún þótti ægifögur
en gat um leið verið afar köld.
Hún var ætíð vopnuð boga og
örvum og var mjög grimm hverjum þeim
sem gerði á hlut hennar eða þeirra
villtu dýra sem hún verndaði.
Hún naut sín best á hlaupum með
dýrunum í skóginum.
Áttkantur 27 cm hár
Ilmur: Kletta - Skógur
Hestía
kr. 4200.-
var hin góða gyðja eldstæðisins.
Hún giftist aldrei, en eingöngu
vegna þess að svo margir
voru hrifnir af henni og hún gat
ekki hugsað sér að særa nokkurn
þeirra umfram annan.
Hestia var blíðust grísku goðanna
og var algjört æði.
Kerti Áttkantur 27 cm hár
Ilmur: Dísarunni
Hera
kr. 4200.-
var drottning guðanna,
gyðja hjónabands og fæðinga.
Hún var afar afbrýðisöm og má
gera ráð fyrir að það hafi stafað
af villtu lífi manns hennar Zeusar
sem jafnframt var bróðir
hennar. Hera þótti fylgjast
vel með öllu sem á gekk
í henni veröld og þótti jarðbundin.
Kerti Áttkantur 27 cm hár
Ilmur: Fresía
Athena
kr. 4200.-
var hin gríska gyðja þekkingar, lista,
réttlætis, hæfileika, stríðs og iðnaðar
hverskonar. Hún var hrein mey en
þótti samt sem áður hálfgerður
kvenhatari. Þrátt fyrir þetta reyndist
hún því fólki vel sem henni líkaði við.
Það hafa svo sem allir sínar
veiku hliðar.
Kerti Áttkantur 27 cm hár
Ilmur: Vanilla
Gaia
kr. 4200.- er gyðja jarðarinnar og stundum kölluð Móðir Jarðar.
Gaia tók sér Uranus son sinn sem eiginmann og átti með
honum 12 börn. Þess utan eignaðist hún fjölda barna
með öðrum, og þar á meðal þrjú skrímsli. Þegar hún
þreyttist á barneignum með Uranusi bað hún annan
son sinn Cronus að hjálpa sé að gelda Uranus,
sem og hann gerði.Hún varði annars börn sín
og elskendur með kjafti og klóm ef einhver
gerði á hlut þeirra.