Opnun búðarinnar hjá okkur á Fossheiði 5 er frá kl. 14 - 22 alla daga þegar við erum heima, endilega hringið ef þið viljið kíkja á öðrum tíma. Síminn hjá okkur er 893 6804
4.03.2009
Það hefur lítið heyrst í okkur hér, en það fer nú að enda.
Við erum að vinna í alskonar skemmtilegum hlutum og erum að blanda og brugga nýja ilmi. Eins hefur bæst í hópinn á reykelsum ilmir, eins og Ást og Gleym-mér-ei. Eins viljum við benda á Rúnarkertin sem hafa verið vinsæl í fermingagjafir.
9.01.2009
Tilboð
Nú er komið tilboð á síðuna sem gildir út janúarmánuð. Vonum við að sem flestir geti nýtt sér það.
29.12.2008
20.12.2008
Klikkið á jólakveðjuna :) til að sjá kortið í fullri stærð.
19.12.2008
Verslunin Spirit á Akureyri
Er með sendingu á leiðinni norður fullt af jólailmum, Jólin eru að koma, Jólatré, Jól í Sveit, Jólakrydd, Gjafir Vitringanna, svo fáeitt sé nefnt. Með þessum orðum óskum við Norðanmönnum Gleðilegra jóla og þökkum viðskiptin á árin sem er að líða.
15.12.2008
Englar og Rósir í Hólagarði
sóttu kerti í morgun og því er orðið gott úrval af kertum hjá þeim.
Vonandi geta þeir sem hafa verið að biðja um kertin til Höfuðborgarsvæðsins tekið gleði sína á ný.
Endilega kíkið á stelpurnar.
11.12.2008
Englar og Rósir í Hólagarði
Hafa tekið kertin okkar í sölu, fyrsta sendingin var að fara til þeirra í dag.
10.12.2008
Við verðum á Gónhól um helgina
Þar verðum við með Ömmu Eldhús og Jólin eru að koma, bæði í litlum og stórum kertum.
Það fer að líða að því að við hættum að taka við pöntunum, vegna þess að við þurfum að reikna með þeim tíma sem tekur að búa til kertið og senda það frá okkur. Hægt verður að panta það sem er til, en það verður að vera fyrir 20. desember. Við munum loka vefversluninni yfir hátíðirnar frá 20. des - 5. janúar 2009
8.12.2008
Við vorum að fá meira af jólailm
Þar á meðal kom sending af Jólin eru að koma sem hefur verið uppseldur hjá okkur. Svo kom ilmur sem margir kannast við Ömmu eldhús. Við látum ykkur vita um þegar við setjum þá á síðuna.
21.11.2008
Ný síða af jólailmum
Kíkið á þessa síðu hér. Við munum bæta við jólailmum mjög bráðlega á þessa jólasíðu. Einn ávöxtur hefur bæst við ávaxtailmina okkar en það er Melóna
19.11.2008
Sending fór í Spirit
í dag, nú fá Akureyringar fullt af jólailmum. Þar á meðal Jólin eru að koma sem er uppseldur hér sunnan heiða.
Blómastúdíó Brynju í Þorlákshöfn fékk sendingu í dag af jólailmum.
18.11.2008
Uppselt í stórum kertum
Sívalingar og stór jólakerti eru uppseld í Jólin eru að koma ilminum. Aðeins lítið til að litlum kertum í þessum ilm. Fyrstir koma, fyrstir fá.
03.11.2008
Fréttabréfið er komið út
Ég sendi fréttabréf út í kvöld, vonandi eru allir á listanum sem ég sendi út en ef ekki þá endilega hafið þið samband.
23.09.2008
Nýr ilmur á síðunni
Vorum að bæta við kaffiilmi á síðuna sem heitir Sælgætiskaffi Meistarans. Þennan ilm er vert að prófa fyrir bæði þá sem elska kaffi ilm og hina sem eru ekki hrifnir af hreinum kaffiilm
19.09.2008
Verslunin Borg í Grímsnesi
Er komin með kertin aftur í sölu, enda kominn kertatími og skammdegið að nálgast.
Við viljum benda sumarhúsaeigendum á að það er gott að hafa þessi kerti í bústöðunum. Þau gefa góðan angan þó ekki sé kveikt á þeim.
17.09.2008
Loksins kemur það
Við erum að senda út fréttabréfið í nótt og á morgun, en svo er tilboð fyrir þá sem koma til okkar í kertagallerýið hér:
Í vikunni 19. - 26. sept. verða öll lítil kerti á tilboði á kr. 250 og öll reykelsi á kr. 150 en aðeins í Gallerýinu að Fossheiði 5.
31.08.2008
Breytingar á verðum og fréttabréf á leiðinni
Eins og allir aðrir þá höfum við orðið fyrir því að öll aðföng til okkar hafa hækkað, við héldum lengi í vonina að þetta myndi lagast en það hefur ekki gerst, svo við neyddumst til að hækka verðið á kertunum þó við hefðum sannarlega ekki viljað gera það.
Á næstunni munu jólailmirnir fara að koma inn, við erum að blanda nýja og spennandi ilmi fyrir jólin og vonum að þeir falli í góðan jarðveg hjá ykkur eins og okkur.
17.08.2008
Hér eru myndir frá okkur í sumar
Hér getið þið skoðað hvað við höfum verið að gera af okkur í sumarfríinu